Take a look

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Margt sniðugt og nothæft.

Ýmsar Síður

Innskráningar kubbur

hejlló...

19. febrúar 2008 klukkan 15:13

Hæhæ alle sammen...
það er mikil pæling hjá mér að hætta með þessa síðu og vera bara með myspace.... er einhvað til í því eða ????
getur verið að ég haldi áfram ef að fólk er duglegra að kvitta og svona... sé til hva mar gerir:) annars þá er myspacið mitt www.myspace.com/raggasg endilegað kikka og adda manni;)

annars er bara alt gott að frétta ég komst á þetta blessaða þorrablót sem var alveg gaman þangað til að líða fór á kveldið.... en svona er þetta bara .... ekkert sem maður getur gert til að breyta því ....
annars er ég nú barað leita mér af íbúð, mamma er að farað selja íbúðina sína og fá sér minna þannig að ég,Björgvin og Leifur erum að leita okkur af íbúð hvort sem að það verði leigt eða keypt kemur í ljós... vorum reyndar búin að fá eina um mánaðarmótin en það datt upp fyrir, ekki gaman en þýðir ekki að væla... barað halda áfram að leita ..!

en mig langaði barað setja inn nokkur orð svo að það væri einhver hreyfing hér :)

nýtt blogg og myndir á síðunni hans Björgvins líka, ef þið vitið ekki lykilorðið þá er e-mailið mitt ragnheidur03@hotmail.com og þið getið sent mér mail til að fá það og ég svara við fyrsta tæki færi:D

cya... Ragga....

hata þetta veður !!! mig langar svo norður ¨¨¨!!!!!!!!!

08. febrúar 2008 klukkan 13:55
já ég er ekki sátt akkurat núna ... ! þetta veður er ekki alveg einsog ég vil að það sé... ég er barað vona að þetta gangi niður strax í fyrramálið því ég ætla mér að fara norður á þorrablót !!!
annars er bara alt gott að frétta hér á bæ..  strákurinn er orðinn frískur og ég farin að vinna aftur :)
annars langaði mig nú barað koma með einhvað smá nýtt hérna inn:)

cya!!!

sælt veri fólkið.....

31. janúar 2008 klukkan 13:08

Það er alveg ótrúlegt hvað drengurinn minn ætlar að vera óheppinn, hann nær sér í allar pestir sem eru að ganga...! núna er hann búinn að vera veikur síðan á sunnudagskveldið...! þannig að ég er ekki búin að fara í vinnu alla þessa viku og fer ekki á morgun heldur.. frekar leiðinlegt.. heyri líka að það er smá pirringur í liðinu í vinnunni en hvað á ég að gera ! skilja barnið eftir eitt heima ! NEI! vá ég er svo sár að það er ekki fyndið! en þýðir ekki að væla! 
annars er bara alt ágætt að frétta !!
var að selja bílinn minn verður gengið frá því á morgun:) fæ 630 þús fyrir hann sem að er bara gott því það er eitt og annað sem þarf að laga og svo eru dekkin undir honum ógeð! þannig að núna er ég barað leita mér að öðrum bíl... ef einhver veit um góðan bíl þá má alveg setja það í comment :)

Ég er komin með myspace síðu og hún er www.myspace.com/raggasg  endilegað kíkka :)

En þið sem eruð að norðan á að fara á þorrablót á hvammstanga 9 febrúar ???

kv. Ragga

ógeð þetta veður!!

26. janúar 2008 klukkan 09:03
já mér finst þetta veður vera frekar leiðinlegt !! er ekki alveg sú manneskja sem að elskar snjó! og ég hata að keyra í þessu ógeði! en það þýðir als ekki að tuða útaf þessu svona er að búa á íslandi!! ;)

En mig langar til að tileinka vinkonu minni henni Önnu Grétu og hennar fjölskyldu þetta blogg, þau áttu litla stúlku í gær sem er bara æðislegt, get ekki beðið eftir því að þau komi suður og að maður fái að sjá þennan litla engil:) Bara æðislega til hamingju með prinsessuna elskurnar mínar ! vona að þið hafið það sem allra best !! :)

en annars er alt gott að frétta af mér og mínum.. höfum það öll bara rosalega gott :) 

Hafiði það sem allra best alle sammen!!
kv. Ragga

jæja gott fólk..

18. janúar 2008 klukkan 20:18
já er ekki kominn tími til að setja inn nokkrar línur hérna ...! ég held það nú bara .. þá verðið þið líka kanski duglegri að skilja eftir ykkur einsog eitt tvö orðGlottandi 
En það er bara alt gott að frétta af manni.. maður er bara ágætlega hress fyrir utan hálstognun sem ég varð fyrir þegar að ég keyrði útaf á sunnudaginn, ekki gott sko..... en ég var sem betur fer ein í bílnum og meiddist lítið og bílinn er heill, bara eitt dekk og ein felga sem eyðilagðist.. sem betur fer:)  já svona er þetta heppnin eltir mig endalaust ! ;) hehe;)
Gullmolinn minn hann Björgvin er sem betur fer búinn að vera hress, búinn að ná sér næstum alveg 100% :D

Ég er mikið að spá þessa dagana hvort að mar eigi að fara á þorrblót fyrir norðan í febrúar, langar gegjað mikið til að fara en það er einhver smá efi í manni... en það kemur alt í ljós...

en annars veit ég nú ekki hvað ég á að segja..!

tékkið mynd mánaðarins ;)

Gleðileg Jólin allir saman:)

27. desember 2007 klukkan 22:25
já þá eru jólin gengin yfir og áramótin eftir:) ....
Einsog margir vita var ég með prinsinn minn á sjúkrhúsi rétt fyirr jólin, hann fékk rs-vírus og lungabólgu. Það var búið að segja við okkur að við myndum vera á sjúkrahúsinu yfir jólin en sem betur fer batnaði prinsinum mínum mjög fljótt og vel og fengum við að fara heim á þorláksmessu... sem betur fer var ég nú búin að öllu fyrir jólin þannig að við komum bara heim í róleg heit:) það var mjög fínt og gott að komast heim og halda gleðileg jól:)
það er nú ekki mikið að frétta af mér, bara vinna, hugsa um prinsinn, sofa og halda svo jólin:D

en já mér hlakkar ekkert smá mikið til áramótanna...! ætla sko að eiga góð áramót í þetta skiptið síðustu 3 áramót hafa verið frekar leiðinleg!
en já hafðið það gott allir :)

ef þið kommentið og sonna þá verð ég nú kanski duglegri að blogga...! :D smile :D

Sæl.....

09. nóvember 2007 klukkan 14:44
Já er ekki kominn tími til að setja inn nokkrar línur hérna inn... Ég veit nú ekki alveg hvað ég á að segja ykkur, það er nú ekkert mikið búið að ske hjá mér ... Fór nú samt í afmæli hjá Höllu minni um daginn, það var alveg fult fult af fólki og fult af alskonar drykkjum.... já það var mikið drukkið, sungið talað og alt bara, þetta afmæli var bara einu orði sagt æðislegt !! :) Þakka öllum fyrir gegjað gott kvöld :) svo fór ég á handboltaleik með Halla sem var bara gaman... við fórum eftir hann og versluðum smá, alveg ótrúlegt hvað maður þarf altaf að verað eyða þessum peningum...:/ en hvað með það ...Björgvin er búinn að vera veikur í að verða viku en hann er sem betur fer allur að koma til... svo er hann að verða 1árs eftir 1 viku... sem er bara ótrúlegt .... og auðvitað á að halda uppá það, en samt ekki fyrren á laugardeginum..:) vá hvað tíminn er fljótur að líða...
En mér líkar altaf jafn vel í vinnunni.. enda eru þetta bara æðislegir krakkar sem að ég er með :) jafnt á komið með unglingana og þessi yngstu:) svo er Jólahlaðborðið í vinnunni 30 nóvember sem verður bara gaman.. :D eða ég held fast í þá von :)
Já helgin framundan... Elín og Hjördís eru að koma til mos og ætlað vera yfir helgina það verður baukað einhvað skemmtilegt:D
en já ekki mier anúna læt ekki líða svona langt í næsta ...
bæjj...

Sæl....

22. október 2007 klukkan 20:39
já ég veit ég er ekki búin að blogga neitt í langan langan tíma, aðal ástæðan er sú að talvan mín var í viðgerð, en hvað með það:)
En það er bara alt gott að frétta hér á bæ, prinsinn minn dafnar bara vel og er ekkert smá duglegur og hefur stækkað alveg gegjað mikið !!.. hann er líka ekkert smá ánægður hjá dagmömmunni sem er mjög gott því að ég er loksins farin út að vinna aftur:) fékk vinnu sem skólaliði í Digranesskóla sem er bara gegjað gaman, þetta er svo fjölbreytt og skemmtilegt.. ég er fyrir hádegi að þrífa og fylgjast með unglingonum, sem er gegjað skrítið því jú ég er nú bara unglingur sjálf heh;) en svo fer ég í eldhúsið í hádeginu að gefa 300 og einhvað krökkum að borða svo eftir það fer í dægradvölina þar sem 1-4 bekkur er og er að passa þau kríli, þau er einhvað um 90 og þarf ég að læra nöfnin á þeim öllum og vitiði mér gengur það bara vel.... ég er búin að ná flestum nöfnunum.. svo eru nokkur sem heita sama nafni og er ég búin að gera þau mistök að ætlað senda einn pabban heim með vitlausan dreng, strákurinn horfði bara á mig og sagði þetta er nú bara ekki pabbi minn.... vá hvað ég skammaðist mín heh;) en hvað með það ég er mannleg og má gera mistök;) en já þetta er semsagt bara gaman:)  já ég geri nú lítið annað þessa dagana en að vinna, hugsa um engilinn minn, boðra og sofa.... er mjög oft sofnuð um 8 með Björgvini.. sem er að vísu mjög gott því ég er vöknuð fyrir 6 á morgnanna til að bera út þennan blessaða mogga....
En ég fór nú samt í stóðréttir fyrstu helgina í okt sem var bara gaman... fór á ballið á laugardagskveldið, með honum Geirmundi, sem var mjög gaman, datt helvíti vel í það samt ekki jafn vel og hann Biggi minn heh ;) hihi.... fór á föstudeginum og hann Biggi minn fékk far með mér norður, svo var farið á smá upphitunar djamm á föstudagskveldið, réttir á laugardeginum og ball um kveldið og svo var haldið heim á sunnudeginum og fékk hann Biggi að keyra til baka:D mjög gott:D þakka elskunum mínum fyrir norðan fyrir geðveika skemmtun:)
Í enda september eignaðist ég svo lítinn frænda, hann Óli frændi og Erla áttu lítinn prins, man ekki alveg hvaða dag það var, en svo er nú annað kríli að bætast við í fjölskylduna og er áætlaður fæðingardagur 21.apríl.. semsagt afmælisdagurinn minn:) Hún Lena mín og Siggi frændi eiga von á því kríli:D svo er nú að styttast í að hún Anna Gréta komi með aðra litla prinsessu í heiminn... vá manni langar bara í annað þegar að maður talar um þetta... en nei ekki strax...:P


EN það særsta sem er að ske hjá mér núna er það að prinsinn minn er að verða 1árs 16 nóvember.. eruði ekki að grínast með hvað tíminn er fljótur að líða !! ?? ég er ekki að ná þessu, mér finst ekki vera komið ár síðan að ég var uppá sjúkrahúsi og fékk hann í fyrsta skiptið í fangið... vá  segji ég bara.....

en já ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili....mun ekki láta líða svona langt á milli næst ;)

kv. Raggan:)

Smá svona....

16. september 2007 klukkan 12:55

jæja ég hef als ekki verið dugleg hérna inná þessu blessuðu bloggi, en ástæðan er sú að talvan mín er í viðgerð og kemst ég takmarkað í tölvu..... en um leið og hún kemur aftur í mínar hendur kemur eitt gott blogg og einhvað nýtt og skemmtilegt ;)
en það má nú alveg einhvað af þessu fólki kvitta á síðuna hjá manni, ekkert gaman að sjá aldrei hverjir koma hér inn sérstaklega þar sem það eru um það bil 100 búnir að koma inná síðuna mína þennan mánuð og aðeins 5 sagt einhvað !!... er ekki sátt... vonast til að það lagist :D

kv.. Ragga...:)

gleðin í hámarki...

30. ágúst 2007 klukkan 17:21
já gleðin er sko í hámarki núna.. ég fékk símtal í gær sem að fékk mig til að smilea útaf eyrum... Dagmamma sem að býr hérna rétt hjá mér eða í Furugrundinni hringdi og sagði mér að það væri laust pláss hjá henni.. og auðvitað tók ég það.. ekki annað hægt;) við mæðgin fórum í morgun og hittum kjelluna og var hún bara mjög fín og prinsinn tók henni bara vel :) svo byrjar aðlögunin á mánudaginn :) og útfrá þessu þá fékk ég líka vinnuna hjá íslandspósti og verð að vinna með henni Unni minni:) ef það verður ekki bara gaman þá veit ég ekki hvað ;) en já þetta er bara æðislegt :)
en það er nú ekki mikið annað að frétta Halli kjallinn er hjá okkur kom á þriðjudaginn og fer aftur á sunnudaginn :) skeltum okkur í keilu í gærkveldi, Margrét og Jónas fóru með okkur og rústaði Jónas okkur en ég og margrét vorum jafnar í stigum, vorum báðar með 69 stig;) flottar ;) hehe;) en Halli var í 2 sæti..
gaman af því...  Stefnan er sennilega sett á ljósanótt á laugardaginn, kemur í ljós hvað mar gerir þegar að nær dregur ;)
en já hef nú ekki meira að segja núna

later Ragga;)

Prófíll

  • Nafn: Ragnheiður Soffía Georsdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Kyn: kvk

Klukkan

Könnun

Þekkiru mig eða ?